Ég hef víða veitt
„Ég hef veitt frá því ég man eftir mér og ég held að margir sem stunda veiði geti tengt við þessa ró sem fylgir því að standa við árbakkann og fylgjast með ánni. Fyrir mér hefur veiðin alltaf verið meira en bara sport – hún er ákveðin tenging við náttúruna, Ég fór ungur að veiða með fjölskyldu minni og við fórum víða: Laugarvatn, Meðalfellsvatn, Þingvallavatn, Blöndu IV, Rangárnar, Stóru Laxá og ótal fleiri staði. Þessar ferðir mótuðu bæði veiðimanninn innra með mér og skapandi hliðina og eru í raun grunnurinn að verkefninu sem ég vinn að í dag: Veiðislóð prentverk.
Hugmyndin kviknaði í sumar þegar ég fann fyrir þörf til að skapa eitthvað nýtt. Ég ákvað að teikna upp eina af mínum uppáhaldsám, Eldvatn í Meðallandi, og þegar ég sá útkomuna fann ég að þetta gæti orðið eitthvað meira. Ég sýndi nokkrum vinum mínum, sem eru líka veiðimenn, teikninguna. Viðbrögðin voru ótrúlega jákvæð og spurðu þeir hvort ég gæti gert fleiri verk af fleiri ám. Það var í raun þar sem Veiðislóð fæddist.
Ég vil að verkin séu stílhrein og tímalaus. Ég tölvuteikna þau út frá loftmyndum og kortagögnum frá Náttúrufræðistofnun, sem ég fæ að nota með þeirra leyfi. Þau eru prentuð á þykkan mattan hágæða ljósmyndapappír í mismunandi stærðum, allt frá A4 upp í 50×70 cm, og stundum stærri, en stærsta verkið sem ég hef selt er 100×140. Hægt er að fá verkin innrömmuð en einnig án ramma. Ég vinn með Prentagram/Innrammaranum sem sjá um prentun, innrömmun og afhendingu fyrir mig og er ég þeim afar þakklátur fyrir samstarfið.
Viðtökurnar hafa farið langt fram úr mínum væntingum og hef ég haft mjög gaman af ferlinu. Ekki einungis veiðimenn hafa samband við mig til að panta verk, en fólk hefur verið að óska eftir að ég teikni upp verk af ám og vötnum sem tengjast þeim á annan hátt – sumarbústaðnum, æskuheimilinu og öðrum stöðum sem skipa stóran sess í þeirra lífi. Það er fallegt að sjá hvernig fólk tengir sig við þessi verk; þau eru ekki bara prentverk af veiðistöðum heldur minningar.
Nýlega fór ég af stað með vefverslun, veidislod.is, þar sem hægt er að skoða og kaupa verk af yfir 50 veiðiám og vötnum um allt land sem ég hef teiknað upp. Margir hafa verið að kaupa verkin til að gefa þau í afmælis- eða jólagjafir og núna er einnig hægt að kaupa gjafabréf svo viðtakandinn getur sjálfur valið verkið sem hann vill fá á vegginn sinn.
Markmiðið með Veiðislóð er að skapa eitthvað sem heldur sál sinni. Ég vil að hvert verk hafi tengingu við stað, manneskju eða minningu. Fyrir mér er Veiðislóð leið til að fanga kyrrðina og orkuna sem býr í íslenskum ám og vötnum,” segir Tomas Helgi enn fremur.




