FréttirLaxveiðiOpnun

Frábær opnun í Þverá

„Já það var frábær opnun í Þverá sú besta frá árinu 2016, þetta byrjar vel,” sagði Aðalsteinn Pétursson um byrjunina í Þverá í Borgarfirði þetta árið og bætti við; „það veiddust 26 laxar og þetta er meiriháttar. Þetta voru mest flottar hrygnur frá 80 upp í 90 sentimetra. En í morgun veiddust 7 laxar og það eru laxar að ganga í árnar,” sagði Aðalsteinn, sem byrjaði sumarið á löxum. 

Vatnið er fínt í ánni núna og Kjarrá opnar 15. júní og verður fróðlegt að sjá hvernig hún byrjar.  Hörku veiðimenn þar í opnun eins og unglambið Þórarinn Sigþórsson. 

Norðurá hefur gefið 50 laxa og Urriðafoss í Þjórsá hefur gefið 200 laxa, sem er meiriháttar byrjun. „Þetta byrjar vel,” sagði Haraldur Einarsson á Urriðafossi um þessa góðu opnun í Þjórsá.

Glímt við lax í Þverá en opnunarhollið veiddi 26 laxa sem frábær veiði í Klapparfljótinu