Þann 3. júlí síðastliðinn voru eftirlitsmenn Fiskistofu við reglubundið eftirlit með lax- og silungsveiðum í sjó þegar þeir urðu varir við net rétt utan við Garðssand í Skagafirði, vestan við Austari-Héraðsvötn. Alls voru netin 14 talsins en nokkur þeirra voru innan 2000 metra frá ósum Austari-Héraðsvatna. Samkvæmt 15. grein laga um lax- og silungsveiði má aldrei leggja net né hafa ádrátt í sjó nær en 2.000 metra, gangi lax í straumvatn. Við mælingar eftirlitsmanna kom einnig í ljós að möskvar netanna voru 10,6 cm.
Samkvæmt 4. grein reglugerðarum búnað og frágang neta vegna veiða göngusilungs í sjó, er hámarksstærð möskva silungsveiðineta 8 cm. Flest netanna voru bundin tvö og tvö saman en ein trossan samanstóð þó úr þremur netum og var því samtals 72 metrar á lengdina.
Samkvæmt 2. grein reglugerðarinnar skal lengd nets ekki vera meiri en 50 metrar.
Að lokum var staðfest að netin voru ómerkt en samkvæmt 6. grein framangreindrar reglugerðar skal net vera merkt í báða enda með bauju ásamt nafni og lögbýli/heimilisfangi þess sem hefur umræddan veiðirétt.
Ljóst var því að netin voru ólögleg hvað varðaði staðsetningu, möskvastærð, lengd og merkingar. Eftirlitsmenn Fiskistofu náðu á eigendur netanna og var brotið jafnframt tilkynnt til lögreglu, sem gerði aflann og veiðarfærin upptæk. Við upptöku netanna fundust 14 sjóbirtingar, fjórar bleikjur og tvær langvíur. Fiskistofa vil því nota tækifærið og ítreka að laxveiðar í sjó eru bannaðar með öllu, samanber 14. grein laga um lax- og silungsveiði.