Rjúpan jólamatur hjá mörgum
„Ég er búinn að fara nokkrum sinnum og ekki fengið nema fimm rjúpur, það er bara búið að vera ótíð hérna fyrir norðan. En margir hafa náð í jólamatinn og ég ætla að reyna að bæta við fáeinum,“ sagði veiðimaður fyrir norðan um stöðuna, en ansi mikill veðurofsi hefur geysað þessa dagana. Veiðimenn keppast við að ná sér í jólamatinn þrátt fyrir leiðinda veðurfar.
„Við sjáum ekki neitt af rjúpunni í morgun,“ sagði veiðimaður í Borgarfirði rétt í þessu. „Þetta verður skárra á morgun,“ sagði veiðimaðurinn enn fremur.
Margir ætla að stað þegar óveðrinu slotar, sunnudagur og mánudagur verða sterkir og veðurfarið á að lagast, lægir og kólnar verulega.