FluguhnýtingarFréttir

Ungur og stórefnilegur veiðimaður

Freymar Daníelsson með fisk sem hann veiddi

Það eru margir að hnýta veiðiflugur þessa dagana enda styttist í veiðitímann. Þetta eru veiðimenn á öllum aldri, Freymar er einn þeirra.

Freymar  Daníelsson er 11 ára og hefur undanfarna sex mánuði lagt mikla alúð í að hnýta flugur. Hann er sannkallaður veiðiáhugamaður og byrjaði að veiða á bryggjunni. Fljótlega kviknaði áhugi á fluguveiði en til að eignast flugustöng og vöðlur safnaði hann sér fyrir búnaðinum með því að tína golfkúlur og selja.

Í framhaldinu ákvað hann að prófa að hnýta flugur sjálfur. Hann eyddi ófáum stundum á YouTube þar sem hann lærði af kennslumyndböndum og hermdi eftir reyndum hnýturum. Með þolinmæði og æfingu hefur hann náð góðum tökum á þessu.

Fjölskyldunni var svo bent á starfsemi Ármanna, þar var Freymari tekið opnum örmum og frá áramótum hefur hann mætt á mánudagskvöldum og hnýtt með reyndum félagsmönnum sem veita honum góð ráð og stuðning. Áhuginn er alveg sjálfsprottinn, þó svo að foreldrarnir styðji hann heilshugar, þá geta þau lítið aðstoðað við hnýtingarnar sjálfar, en þar koma Ármenn sterkir inn.

Freymar Daníelsson með eina fluguna