Fréttir

Lítið rætt um að opna Varmá aftur fyrir veiði

Hilmar Þór Sigurjónsson með fisk við Reykjafoss í Varmá í Hveragerði

Lítið sem ekkert hefur verið talað um að opna Varmá í Hveragerði síðan hún var lokuð fyrir veiðimönnum vegna mengunar. Lítið sem ekkert hefur verið gert fyrir ána en til stóð að setja upp hreinsibúnað og talað var um að opna hana aftur árið 2030. 
„Ég hef bara ekkert frétt um opnun Varmár í Hveragerði, hún er bara lok, lok og læs fyrir veiði. Ekkert virðist hafa gerst í málinu,“ segir veiðimaður sem veitt hefur í Varmá til fjölda ára.
„Ég fékk mér góðan göngutúr meðfram ánni um daginn og skoðaði aðstæður, þarna veiddi maður oft vel af sjóbirtingi og sérstaklega upp í Reykjafossi. En ég sá ekki neitt í gangi þarna svo áin verði opnuð aftur, þessi frábæra veiðiá er gagnslaus fyrir veiðimenn þessi árin. Mjög undarlegt allt saman,“ sagði veiðimaðurinn. 
Varmá er fornfræg veiðiá með  mest af sjóbirtingi og í henni veiddust stórir laxar. Margir hafa veitt þarna og til fjölda ára, þeir bíða spenntir eftir að aftur verði leyft að veiða og áin hreinsuð svo sómi verði af. 
En hversu lengi þurfa veiðimenn að bíða veit enginn, vonandi ekki of lengi.