Fréttir

Fengum laxa en lítið af fiski

Ásgeir Olafsson með flottan lax úr Affalinu en veiðst hafa 122 laxar í sumar

„Ég og félagi minn kíktum í dagsferð í Affallið,“ sagði Ásgeir Ólafsson og bætti við: „Áttum reyndar tveggja daga holl en þar sem veiðin hefur verið mjög döpur þarna í sumar og lítið af fiski í ánni þá ákváðum við að skreppa bara í einn dag. Fundum bara fisk á einum stað og náðum þremur löxum. En veðrið var fallegt og útiveran góð svo við fórum sáttir heim,“ sagði Ásgeir ennfremur.