Fimm laxar á land, flott byrjun í Þjórsá
„Þetta var frábær opnun og flottir fiskar gaman af þessu,“ sagði Harpa Hlín Þórðardóttir, sem opnaði Þjórsá í morgun og veiddust fimm vænir laxar. Stefán Sigurðsson veiddi fyrsta lax sumarsins á Urriðafosssvæðinu þetta árið. „Þetta voru laxar frá 74 cm og uppi 83 cm, flottir fiskar það er gaman að byrja sumarið svona,“ sagði Harpa enn fremur.
Hver áin af annarri opnar þessa dagana, Norðurá í Borgarfirði opnar 4. júní og verður spennandi að sjá hvernig það gerir sig. Laxar hafa sést á ótúlegum stöðum í byrjun, allskyns hringir í kringum þá, lítið annars sjáist, þó maður rýni vel og lengi.
