Fréttir

Fjölmenni við Elliðavatn í frábæru veðri

„Við erum búnir að fá einn eða tvo, ekki mikil veiði en frábær útivera og gott veður,“ sagði veiðimaður, sem við hittum við spegilslétt Elliðavatn í kvöld og rétt fyrir neðan bæinn við Elliðavatn var lax að stökkva.

Það var fjölmenni að veiða, veiðimenn að æfa fluguköst á öllum aldri og aðrir lengra komnir, fiskurinn var að vaka um allt vatnið, laxavonin  er byrjuð fyrir alvöru í vatninu. Veiðin gekk vel í Elliðaánum, flott veiði og vænir fiskar.

sjón er sögu ríkari, myndirnar tók María Gunnarsdóttir.