Urriðasvæðið opnaði með stæl – boðið uppá veislu
„Já við vorum að opna Urriðasvæðið og það gekk vel, ég og sonurinn Emil Örn veiddum fimmtán fyrir hádegi, urriða, verulega væna fiska,” sagði Árni Friðleifsson, við Urriðasvæðið í Þingeyjarsýslu í morgun og það veiddust yfir hundrað urriðar. Veiðimenn voru sammála um að fiskurinn var vel haldinn eftir vetur. „Veðrið var la la í morgun, rigning og aðeins 6 gráður en eftir hádegi kom ekta íslensk sumarveður, 10 stiga hiti og smá sólarglenna,” sagði Árni enn fremur.
„Þetta var meiriháttar dagur og fiskurinn vel haldinn, það komu allav ega hundrað urriðar,” sagði Bjarni Júlíusson, sem var mættur að opna eins og oft áður. „Helluvað og Hofstaðir voru að gefa virkilega vel af fiski,” sagði Bjarni í lokin.
Það var strax veisla í morgun í Þingeyjarsýslunni og fiskurinn vel haldinn eftir veturinn. Það er ekki slæmt að byrja sumarið með glímu við sterka urriða á fluguna.
