Fréttir

Fjör hjá ungum veiðimönnum í Soginu

,„Þetta er hann Andri Hrafn Viktorsson, hann er 2 ára, systir hans og hann tóku þennan fisk sem Andri Hrafn heldur á, vildi ekki láta fiskinn frá sér næstu tvo og hálfa tímana,“ sagði Viktor Kristmannsson um veiðidelluna og veiðitúrinn á Syðri Brú í Sogi.

„Man ekki eftir að hafa séð hann eins ánægðan og þegar hann var haldandi á fiskinum. Þessi á eftir að vera oft á bakkanum með systur sinni en Stella er 7 ára og farin að sýna mér hvernig á að veiða, elskar að sitja við bakkann og halda i stöngina og syngja (kalla á fiskana en mjög lágt, svo þeir fari ekki).
Segir mér að bíða rólegur því fiskurinn kemur,“ segir Viktor um veiðiskapinn.