Fréttir

Lax númer 3000 í Ytri-Rangá

Sverrir Rúnarsson með lax númer 3000 í Ytri-Rangá

Lax númer 3000 er kominn á land. Sverrir Rúnarsson, leiðsögumaður, landaði þessum fallega laxi í Stallsmýrafljóti í morgun kl 11. Við erum í skýunum með veiðina og nóg eftir af veiðitímanum hjá okkur. Við eigum laust um helgina ef einhverjir vilja taka þátt í veislunni.

Veiðin gengur víða vel stóru hængarnir eru komnir í vígahug og geta tekið hvenær sem er. Þeirra tími er kominn.