Veiðin í Selá og Hofsá í Vopnafirði hefur farið ágætlega af stað og í fleiri laxveiðiám fyrir austan. Bubbi Morthens hefur verið við veiðar í Hofsá í Vopnafirði síðustu daga, en þar hefur hann veitt áður. En mest veiðir Bubbi í Laxá í Aðaldal og er þar nokkra daga á hverju sumri við veiðar.
„Já ég fékk 80 sentimetra lax í gær á Dimmblá fluguna númer 8,” sagði Bubbi Morthens á bökkum Hofsár þar sem kastaði fyrir laxana í gríð og erg.
Nýjar veiðitölur eru væntanlegar í kvöld og nótt og verður spennandi að sjá hve mikið kemur úr veiðinni. Smálaxinn er að mæta í ríkari mæli eftir að tveggja ára laxinn hikstaði aðeins.
Mynd. Bubbi Morthens með laxinn í Hofsá í Vopnafirði í gær.