Veðurfarið hefur breyst hratt
„Fyrsta hollið í Tungufljóti veiddi 8 fiska og það voru erfið skilyrði í byrjun en þetta er allt að koma,“ sagði Jón Þór Júlíusson hjá Hreggnasa um Tungufljótið og hann bætti við; „já erfitt að veiða fyrst en nú hefur þetta allt lagast eftir að fór að hlýna verulega. Næsta holl veiddi 45 fiska en núna rignir þarna fyrir austan og áin er eins og stórfljót. Það hafa veiðst um 53 fiskar í Tungufljótinu. Það hefur ekki verið hægt að veiða í Grímsá í Borgarfirði ennþá, en það stendur allt til bóta. Það hefur hlýnað verulega og helgin gæti orðið góð. Skuggi hefur líka verið erfiður en þetta er allt að koma,“ sagði Jón Þór enn fremur um veiðina hjá þeim.
Veðurfarið hefur breyst og ár sem voru á ís byrjaðar að gefa eins og Leirá í Leirársveit. Þar eru komnir nokkir fiskar á land.

