FréttirUrriði

Bolta urriðar á Urriðasvæðinu

Matthías Stefánsson gerði góða ferð á Urriðasvæðið í Ytri Rangá í gær og landaði þessum svaka urriðum. Haustveiðin getur verið  skemmtileg á Urriðasvæðinu en þá er einnig góð von á laxagengd.

„Þetta var meiriháttar, veiddi 73, 71 og 60 sentimetra urriða, þetta var verulega gaman,“ sagði Matthías Stefánsson í samtali um þessa flottu urriðaveiði um helgina.