„Veiðin gengur bara vel hjá okkur og núna hafa veiðst 173 laxar það sem af er,“ sagði Brynjar Þór Hreggviðsson við Norðurá í Borgarfirði, þegar við spurðum um stöðuna en 99 sm lax veiddist í ánni fyrir nokkrum dögum.
„Það var erlendur veiðimaður sem veiddi þennan fisk í Kríuhólmi, við fáum alltaf einn og einn svona lax á hverju sumri og jafnvel stærri. Það eru laxar að ganga á hverju flóði núna og veiðimenn ánægðir með ganginn í veiðinni,“ sagði Brynjar við Norðurá.
„Það veiddust 6 laxar fyrir hádegi hjá okkur,“ sagði veiðimaður okkur í Þverá og Kjarrá en þær eru aðeins fyrir neðan Norðurá í laxafjölda. Næstu daga á að hlýna aðeins enda búið að vera skítakuldi síðustu daga svo það er von á betri tíð. Tölur eins og 10, 12, 14 og 16 stiga hiti eru í kortunum.
Mynd. Erlendi veiðimaðurinn með 99 sm laxinn úr Norðurá í Borgarfirði.