Hafravatn er vinsælt til dorgveiða
Það hafa margir verið að veiða á Hafravatni í vetur, miklð sömu veiðimennirnir og veiðin er ágæt, fiskurinn er kannski ekki mjög stór en menn eru að fá eitthvað og það er fyrir mestu, mest veiðist af urriða.
„Ég sé að menn hafa verið að fá fína veiði en fiskurinn mætti vera stærri, bæði bleikja og urriði. Þetta er mikið sömu veiðimennirnir hérna,” sagði veiðimaður við vatnið og bætti við; „þetta grisjar vel vatnið að veiða allt árið í því, fiskurinn er frekar smár hérna.
Það er þægilegt aðgengi að veiða í Hafravatni sumar og vetur og svo kostar ekkert að veiða. Í vetur hafa menn verið iðnir við Meðalfellsvatn flestar helgar og veiðimenn að fá eitthvað af fiski.
Margir skelltu sér um helgina til veiða og Hreðavatn hefur líka verið stundað á dorg í vetur. Veðurfarið hefur verið ótrúlega gott og það hefur haft sitt að segja.

