FréttirLaxveiðiár

Spennandi breytingar í Ytri-Rangá

Spennandi breytingar eru í vændum á Ytri-Rangá árið 2025. Þessar breytingar eiga sér stað á laxasvæði Ytri-Rangár þar sem Hólsá Borg verður með í róteringu og svæðið ofan Árbæjarfoss (þekkt sem gamla svæði 9) verður tekið úr róteringu. Markmið þessara breytinga er að auka gæði, fjölbreytni og pláss fyrir veiðifólk. Hólsá hefur staðið sig prýðilega undanfarin ár og gefið að meðaltali 600 laxa á ári.

Á þessu ári gaf Hólsá Borg 833 laxa sem gerði að aflahæsta svæðið í ár! Hólsá Borg, sem er um 7 km langt, státar af löngum veiðistöðum þar sem laxinn stoppar í miklu magni. Sem dæmi má nefna að Staur gaf í ár 426 laxa og var í stöðugri notkun frá miðjum júlí til miðjan september, Staur er staðsettur miðsvæðis Hólsár. Auk þess má finna tvær sleppitjarnir á svæðinu, sem eru í 3 km fjarlægð hvor frá annarri – ein rétt ofan við Fjarkastokk og hin ofan við Straumey.

Hólsá verður skipt í tvö svæði með tvær stangir á hvoru svæði. Frá 24. júlí til 30. september verða 20 stangir (10 svæði) í róteringu, í stað 18 stanga (9 svæða).
Á myndinni hér að ofan má sjá þessa glæsilegu hrygnu sem veiddist á gamla góða veiðistaðnum Borg! Hér má finna nánar upplýsingar um Ytri-Rangá og skipulag tímabilsins 2025: https://ioveidileyfi.is/ytri-ranga/ eða hafið samband á netfangið: stefan@icelandoutfitters.com