Fréttir

Lítil á með stóran sjarma

Leirá í Leirársveit er lítil en afar skemmtileg lax- og sjóbirtingsá, aðeins um 40 mínútna akstur frá höfuðborgarsvæðinu. 

Áin er tveggja stanga, um 7 km langt veiðisvæði, með 24 merktum veiðistöðum sem bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega veiði.

Leirá hefur lengi verið þekkt fyrir góða sjóbirtingsveiði á vorin og er af mörgum talin ein áhugaverðasta vorveiðiáin í nágrenni Reykjavíkur. 

Þar gefast oft vænir og stórir sjóbirtingar, sérstaklega neðarlega á vatnasvæðinu. Á haustin er hún einnig frábær kostur, þegar bæði lax og birtingur eru í ánni.

Einn þekktasti veiðistaður árinnar er Brúarhylur, staður númer 4 við þjóðveginn, en víða leynast fallegir veiðistaðir, meðal annars á efstu svæðunum. 

Aðgengi er gott að flestum veiðistöðum og víðast þarf ekki að ganga langt þar sem hægt er að aka nærri flestum stöðum.

Í ánni er eingöngu veitt með flugu og öllum fiski sleppt. 

Þótt áin sé smá í sniðum getur hún gefið mjög skemmtilega veiði, bæði af sjóbirtingi og laxi á vorin og haustin, en allt að 60 laxar hafa veiðst þar á góðu ári. 

Með veiðileyfum fylgir huggulegt veiðihús og báðar stangir eru seldar saman. Leirá er því kjörin fyrir vini eða litlar fjölskyldur.

Vorveiðin hefur gengið ágætlega og töluvert af fiski veiðst.