Fluguhnýtingar í sviðsljósinu á Akranesi – Mihaela vekur athygli
„Fluguhnýtingafélag Vesturlands hélt fluguhnýtingasýningu á Akranesi á dögunum. Góð aðsókn og nýjar fluguhannanir settu svip sinn á kvöldið, þar á meðal laxaflugan Mihaela, sem hefur þegar skilað góðum afla,“ sagði Jóhann Ólafur Björnsson í samtali og bætti við; „Fluguhnýtingafélag Vesturlands stóð fyrir fluguhnýtingasýningu í íbúðinni Frystihúsinu við Akratorg á Akranesi síðastliðið fimmtudagskvöld. Þetta var í annað sinn sem félagið stendur fyrir slíkri sýningu, en í fyrra tók félagið einnig þátt í Vökudögum með sambærilegum viðburði.
Að þessu sinni tóku fimm fluguhnýtarar þátt, þar á meðal gestahnýtararnir Helga Gísladóttir og Eiður Valdemarsson frá Reykjavík. Flugurnar voru að mestu leyti nýlegar og meðal þeirra voru flugur sem þátttakendur höfðu hannað sjálfir. Helga, Eiður og Jóhann sýndu þannig eigin hönnun og gáfu gestum innsýn í þá sköpun sem liggur að baki fluguhnýtingum.
Sýningin var sett upp með þeim hætti að vegfarendur gátu virt flugurnar fyrir sér utan frá. Það skapaði skemmtilega umgjörð og gestir komu jafnt og þétt yfir kvöldið. Viðtökurnar voru góðar og greinilegt að áhuginn á fluguhnýtingum er mikill.
Það er að mörgu leyti eftirtektarvert að slík sýning skuli ganga vel í bæ með um níu þúsund íbúa. Hún sýnir að áhugafólk um fluguhnýtingar er tilbúið að mæta, spjalla og deila þekkingu sinni. Sýningin er jafnframt vettvangur til að kynna handverkið fyrir fólki sem þekkir það ef til vill ekki vel,“ sagði Jóhann Ólafur enn fremur.
Mihaela – ný laxafluga með sérstöðu
Ein þeirra flugna sem vert er að gefa sérstakan gaum er Michaela, ný laxafluga sem Jóhann Ólafur Björnsson hannaði og hnýtti sjálfur. Markmiðið var að hanna glænýja laxaflugu, og það tókst.
Búkurinn er úr flossi, í skottið er notað Golden Pheasant og bæði undirvængur og vængur eru úr Arctic Runner frá Baldri Hermannssyni.
Flugan var fyrst kynnt á Verslunarmannahelginni og vakti strax mikla athygli. Hún hefur einnig þegar sýnt hvað í henni býr við veiðar. Síðan í byrjun ágúst hefur Mihaela gefið vel af laxi og auk þess hefur veiðst á hana vel af bleikju.
Sýningin á Akranesi sýndi því ekki aðeins fjölbreytni í fluguhnýtingum heldur einnig þann metnað og sköpunarkraft sem býr meðal íslenskra fluguhnýtara. Með áframhaldandi viðburðum á borð við þennan fær áhugamálið aukinn sýnileika og hnýtarar tækifæri til að miðla hugmyndum, reynslu og nýjum hönnunum.

