„Villtur íslenskur lax er nú til sölu í mörgum verslunum á höfuðborgarsvæðinu. Ég er skelfingu lostinn! Á okkar tímum þegar villti laxinn er í algerri útrýmingarhættu þá er hann enn strádrepinn í net og seldur í verslanir! Þetta getur ekki verið satt, segja menn, en þetta er dagsatt! Á sínum tíma þegar hallaði undan rjúpnastofninum var skilyrðislaust sett sölubann á rjúpur og svo síðar einnig á gæs. Hvernig stendur á að yfirvöldum er alveg sama um villta laxinn? Getið þið í NASF og IWF tekið þetta áfram fyrir Ísland og krafist sölubanns á villtum laxi, við þurfum snarar hendur, tíminn er að renna út!“