Aldrei að gefast upp í veiðinni
„Vorum við Brúará / Sel í dag í blíðskapar veðri, ég og sonur minn Benedikt Arnór,“ sagði Þórólfur Heiðar Þorsteinsson og bætti við; „margar voru við veiðar en treg veiði. Gengum um allt svæðið og vorum við að gefast upp seinni partinn. Sáum þá veiðimann á hinum bakkanum fá fisk og tvíefldumst. Gengum rösklega í hyl sem heitir Eyrin og varð Benedikt strax var. Fékk svo fínan sjóbirting á bleikan Nobbler! Sem fór á pönnuna um kvöldið,“ sagði Þórólfur enn fremur.

