FréttirVeiðisaga

Veiði í Skotland: Laxar á land í 20 stiga hita

Aðalsteinn Pétursson með lax úr Spey í Skotlandi, og að sjálfsögðu sleppt aftur /Myndir: Sigurjón Ragnar

Aðalsteinn Pétursson var ásamt fleiri veiðimönnum við veiðar í ánni Spey í Skotlandi í síðustu viku og landaði þessari fallegu 80 cm hrygnu á fyrsta degi veiðinnar mánudag. „Já og svo komu tveir aðrir laxar á land. Gími Gunnars yfirgæd í Kjarrá fékk einn flottan lúsugan lax á miðvikudag og þriðji laxinn kom svo á föstudaginn, þá veiddi Dagmar P. Óttósdóttir fallega 78.cm hrygnu í Homepool, svo að það komu þrír á land og þrír misstir, við sáum víða laxa en þeir voru mjög tregir að taka sagði Aðalsteinn. Veður hefur verið mjög óhagstætt, glampandi sól og hiti yfir 20 gráður þrjá daga í röð.

Við vorum við veiðar á svæði sem nefnist Arndilly  sem er með betri svæðum í þessari annars frægu á, og svæðið státar af afar fallegu landslagi, algjörlega einstæðu, svo það fór bara vel um okkur, en veiðiveðrið var alls ekki gott. En svona er bara laxveiðin,” sagði Aðalsteinn að lokum.