FréttirOpnunUrriði

Elliðaárnar að gefa urriða

Vorveiði hófst í Elliðaánum þann 1. maí og hefur farið vel af stað. Alls hafa 54 urriðar veiðst til þessa. Veiðimenn komnir af stað og allt að komast á fleygiferð. Veðrið mætti vera aðeins betra en það á að hlýna næsu daga.

Elliðaárnar eru einstök náttúruperla í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Þar mætast borg og villt náttúra á einstakan hátt, þar sem tærar ár liðast um gróið umhverfi og skapa kjöraðstæður fyrir fisk og veiðimenn. Svæðið er aðgengilegt, fallegt og hefur í áratugi verið einn af mikilvægustu útivistarstöðum landsins.

Árnar hafa sjaldan verið jafn vinsælar meðal veiðimanna og komast færri að en vilja ár hvert.