Mokveiði í Minnivallalæk – næsta helgi laus
Það var góð helgin í Minnivallalæk en Jóhann Freyr var þá að veiðum með félögum og sendi þessa línu og myndir: „Helgin var frábær og komu yfir 30 fiskar á land og missti slatta. Fiskur um allan læk og augljóst að það er langt síðan maður hefur séð lækinn svona líflegan.“
Gaman að heyra og þar af voru nokkrir á þurrflugu sem er óvenjulegt svo snemma og engan sáu þeir regnbogann svo vonandi hefur hann að mestu verið veiddur upp.
Næsta helgi er laus ef menn vilja skjótast og renna fyrir stóra fiska.

