FréttirVeiðitölur

Drottningin er á eldi – 106 laxa holl!

Það hefur verið ævintýraleg veiði í Laxá í Aðaldal síðustu daga og áin er hreinlega á eldi. Sterkar göngur skila sér inn og fiskur veiðist upp um alla á. Hollið sem lauk veiðum í dag endaði með 106 laxa á land og langt er síðan slíkar tölur hafa sést í Laxá í Aðaldal.
Harðsnúið lið var við veiðar síðustu daga – veiðihópur frænda sem kenndir eru við Grafarbakka á Húsavík, í bland við heimamenn úr Aðaldal. Þessi hópur lét hvorki rok, rigningu né allt að því skafrenning stoppa sig við veiðarnar, og það skilaði sér svo sannarlega. Þegar upp var staðið var útkoman hvorki meira né minna en 106 laxar.
Aflinn var blandaður af fallegum nýgengnum smálaxi og tveggja ára laxi, auk þess sem nokkrir stórir hængar komu á land; 92, 95, 96 og 97 cm – sem sýnir að þeir stóru eru farnir að gefa sig að flugum veiðimanna. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu á þessari glæsilegu veiði hér í Laxá í Aðaldal.

Laxá í Aðaldal er komin í 444 laxa sem er fínasta veiði.