FréttirMaríulaxVeiðitölur

Frábær veiði í Fljótunum, mokveiði í sumar

Hann Hrafnar verður 10 ára í desember, hann fór með pabba sínum í Fljótaá í Fljótum um daginn og veiðin var vægast sagt ævintýraleg. Hollið landaði rúmlega 400 fiskum en megnið var bleikja auðvitað en það komu 5 laxar upp einnig og stærsti fiskurinn kom á rauðan frigga og það var maríulax hjá Hrafnar. Ugginn var ekki bitinn af því þessi fiskur þarf að fá að hrygna í ánni. 

Hann Hrafnar landaði um 35 fiskum sjálfur og hann stóð með pabba sínum við ánna í rúma tólf  tíma á dag og heimtaði að veiða allan tímann. Hrafnar á framtíðina fyrir sér í veiðinni. 

Já veiðin hefur verið frábær í Fljótunum í sumar og  bleikjuveiðin meiriháttar. Fljótaá hefur gefið 2000 bleikjur og töluvert af laxi. Efri Flókadalsá hefur verið gefið vel af bleikju í sumar og veiðst á milli 800 og 900 bleikjur. Bestu hollinn hafa verið með yfir 100 bleikjur í ánni.