Bændur, veiðiréttarhafar, allir sem hafa hagsmuni af stangveiði hér á landi og náttúruverndar-sinnar lýsa yfir miklum áhyggjum af niðurstöðum rannsóknar í nýútkominni skýrslu Hafrannsóknastofnunar (skýrsluna í heild má finna hér: https://www.hafogvatn.is/is/midlun/frettir-og-tilkynningar/skyrsla-um-erfdablondun-laxa). Sláandi niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta mikla erfðablöndun villtra íslenskra laxastofna við norskan eldislax.
Fyrir hönd þessara aðila vill Landssamband veiðifélaga (LV) koma eftirfarandi á framfæri:
- Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á 4,3% erfðablöndun í íslenskum ám sem er yfir því viðmiði sem áhættumat erfðablöndunar setur. Þessar niðurstöður eru úr sýnum sem flest tilheyra hrygningarárgöngum áranna 2014-2018 en á þeim árum voru aðeins 6.900 tonn að meðaltali í sjókvíum hér við land. Síðan þá hefur umfang eldis margfaldast og má álykta út frá því að raunstaðan sé talsvert verri en þessar niðurstöður gefa til kynna.
- Erfðablöndun var staðfest í ám sem eru allt upp í 250 km frá sjókvíaeldi. Þær niðurstöður sýna að allir laxastofnar landsins eru undir í áhættunni um erfðablöndun.
- Erfðablöndun var staðfest í Víðidalsá í Húnavatnssýslu, Laxá í Aðaldal og Hofsá í Vopnafirði. Þó svo að LV telji að allir villtir laxastofnar hafi sinn sjálfstæða tilverurétt og séu mikilvægir, óháð skilgreiningu Hafrannsóknastofnunar á nytjastofnun, þá sýnir þessi niðurstaða að stórir stofnar í mjög fjárhagslega arðbærum laxveiðiám eru líka í hættu.
- LV harmar seinagang við útgáfu skýrslunnar en nýjustu sýnin sem lögð eru til grundvallar rannsóknarinnar eru síðan 2020 og þau elstu síðan 2004. Í ljósi þeirra hagsmuna sem í húfi eru fyrir náttúruna er eðlilegt að sú vöktun sem rannsóknin tekur til sé framkvæmd árlega og að niðurstöður berist hratt og örugglega.
Í ljósi alls sem fram kemur í skýrslunni ítrekar LV marg framkomnar áhyggjur sínar af sjókvíaeldi á frjóum norskum laxi enda öllum ljóst að sá iðnaður verður banabiti íslenskra laxastofna verði ekkert að gert. Erfðablöndun er óafturkræfur skaði og engar mótvægisaðgerðir geta komið í veg fyrir hana. LV krefst þess því enn og aftur að stjórnvöld taki á þessu máli og leggi fram áætlun sem miði að endalokum sjókvíaeldis á frjóum laxi hér við land.