FréttirVeiðistaðalýsingar

Andalækur – nýtt veiðisvæði

Andalækur

Andalækur / Fullsæll er tiltölulega nýtt svæði hjá IO veiðileyfi.
Við tókum við umboðsölu fyrir veiðileyfum í Fullsæl fyrir um ári síðan, þetta svæði kom okkur verulega á óvart hvað varðar magn af silungi á svæðinu. Svæðið við landi Brekkur nær yfir bæði stóran hluta af Andalæk og Fullsæl. Frábært aðgengi er að svæðinu, það er vel merkt og bílastæði staðsett á nokkrum stöðum.

Töluvert er af urriða á svæðinu, en einnig má finna bleikju og jafnvel lax þegar líður á haustið. Fullsæll myndast þar sem Andalækur og Brekkulækur sameinast. Brekkulækur er mjög frjór lækur og má segja að sá lækur haldi uppi góðum lífskilyrðum í kerfinu.

Það sem okkur finnst skemmtilegast við svæðið eru breiðurnar og djúpu hyljirnir. Urriðinn heldur sig gjarnan við steina eða í litlum lænum á þessum breiðum.

Þetta er fjögurra stanga svæði sem hentar vel fyrir léttan fluguveiðibúnað. Okkur hefur reynst best að nota nettar græjur og flugur, til dæmis línuþyngd 4 eða 5. Allar helstu veiðiaðferðir virka vel, en á vorin hafa straumflugur og púpur gefið best, á meðan þurrflugur geta verið frábærar þegar aðstæður leyfa yfir sumarið.

Helstu straumflugur eru til dæmis Dentist, Black Ghost og Nobbler, en vinsælar púpur eru P.T., Peacock og blóðormur, þessar sígildu sem virka nánast alltaf í flestum íslenskum ám.

Í leysingum getur Fullsæll breikkað töluvert úr sér og þá borgar sig að þyngja fluguna til að ná henni niður.

Svæðið býður upp á mikla fjölbreytni og það er ekki verra að það er í stuttri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu og sumarhúsum Bláskógabyggð. 

Fullsæll er frábær vor veiði svæði og frábær á til að hrista af sér vetrar hrollinn.