FréttirOpnun

Fiskurinn að taka í kuldanum

Arnar Jón Agnarsson og Pálmi Hlöðversson með einn af fyrstu fiskunum úr Geirlandsá

Þrátt fyrir kulda og trekk eru veiðimenn að fá fína veiði í byrjun, skoðum stöðuna og kíkjum á veiðina eftir byrjun veiðitímans. 

„Við vorum að opna Geirlandsá og erum komnir með 13 fiska núna,, sagði Bjarki Bóasson sem var að opna Geirlandsá við Klaustur í morgun. En veiðin byrjaði á mörgum stöðum í morgunsárið og veiðimenn voru að  fá fiska víða.

„Það er logn hérna við Áramótin og 4 gráður, já þetta gengur ágætlega hérna,“ sagði Bjarki við Geirlandsá.

„Tungufljótið er að opna og það sást töluvert af fiski þarna fyrir nokkrum dögum,“ sagði Jón Þór Júlíusson hjá Hreggnasi og bætti við; „Grímsá í Borgarfirði er líka að opna.“

Korpa er byrjuð að gefa fisk og Leirvogsá opnaði líka í morgun eins og Korpa. Leirá í Leirársveit opnaði í morgun og veiðimenn fóru strax á bakkann í morgun.

Tungulækur gaf flotta fiska í morgun og mest var þetta veiði í Opinu. Við Vífilsstaðavatn  var rólegt í morgun en engir veiðimenn að sjá en ein stór vök er í vatninu og aldrei að vita að veiðimennn mæti á staðinn fyrr en seinna í dag.