„Við enduðum í tveim löxum en settum í fimmtán fiska en þeir tóku grannt. Nýi laxinn, sem var að sprautast inn, er gjörsamlega áhugalaus að taka neitt,“ sagði Guðmundur Jörundsson þegar við heyrðum í honum í Flekkudalsá á Fellsströnd.
„Já fiskurinn tekur grannt það er alveg óhætt að segja það, mjög sérstakt,“ sagði Guðmundur enn fremur.
Það er sól þessa dagana og lítil rigning í kortunum, veiðimenn hafa verið að lenda í litlum tökum víða og fiskurinn bítur ekki á. Nýir fiskar, töluvert af þeim víða, virðast ekki áhugasamir um beituna.
Heyrðum í veiðimönnum í Hörðudalsá, þar var sól og lítið vatn, allt með kyrrum kjörum. Eitthvað hefur veiðst í Hvolsá og Staðarhólsá í Dölum af bleikju en ekki er vitað um laxa ennþá.