FréttirUrriði

Urriðaganga á Þingvöllum með Jóhannesi Sturlaugssyni

Urriðar á Þingvöllum /mynd María Gunnarsdóttir

Urriðagangan er á Þingvöllum á morgun, laugardaginn 15. október og hefst kl 14:00 á brúnni við bílastæðið, þar sem forðum stóð hótelið Valhöll. Þeir sem vilja sjá meira af fallegum Þingvallaurriðum og fá frekari fræðslu um lífshætti þeirra geta síðan gengið örstuttan spöl að Drekkingarhyl, þar sem síðari hluti fræðslunnar fer fram, með fulltingi urriða, sem þar eru. 

Ungir sem aldnir er hvattir til að mæta. Í áranna rás hefur það sýnt sig að börn njóta þess að skoða urriðana líkt og þeir sem eldri eru, ekki síst vegna þess að fáeinir urriðar verða í búri á árbakkanum og þannig fá börn tækifæri til að sjá urriða í meira návígi en ella væri. Veður verður gott samkvæmt veðurspá Veðurstofu Íslands. 

Á vefsíðu Þingvallaþjóðgarðs er að finna nánari upplýsingar um tilhögun fræðslugöngunnar og hagnýt atriði því tengd, svo sem um staðsetningu þeirra bílastæða sem best er að nota.

Þingvellir /mynd María Gunnarsdóttir