„Það hefur verið fín veiði síðustu daga og það veiddust 14 laxar fyrir fáum dögum, en áin er komin í 130 laxa,“ sagði Ásgeir Arnar Ásmundsson, en veitt er í ánni til 20. október og fiskar eru að ganga ennþá í ána.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/09/4EC33B90-7360-4A77-89D6-44DEAFA2D037-764x1024.jpeg)
„Það sáust laxar um daginn alla vega 60 laxar í einum hylnum,“ sagði Ásgeir ennfremur. Merkilega við veiðina í sumar í Skógá er að bara hafa veiðst hængar í ánni, næstum allir laxarnir sem hafa komið á land.
Kerlingardalsá og Vatnsá hefur gefið næstum 50 laxa og helling af sjóbirtingi. Heiðarvatn hefur verið að gefa flotta veiði og væna fiska.
![](https://veidar.is/wp-content/uploads/2022/09/Skógá-764x1024.jpg)