Fréttir

Veiðitölur sumarsins úr Stóru Laxá

Finnur B Harðarson einn af leigutökum Stóru Laxár

„Nú er ég búin að taka saman veiðitölur eftir svæðum og hyljum fyrir árið 2022,“ sagði Ester Guðjónsdóttir, formaður veiðifélags Stóru Laxár í Hreppum, staðan er þessi:
„Alls veiddust 934 laxar, 40 urriðar og 4 bleikjur, alls 978 fiskar. 
Á neðra svæði veiddust 732 laxar, 37 urriðar og 4 bleikjur.
Mest veiddist í Stekkjarnefi 163 laxar,
Laxárholti 138,
Bergsnös 115,
Kálfhagahylur 100,
Ófærustrengur 36,
Kóngsbakki 20, 
Járnhylur 20, 
Flatistrengur 17,
Heljarþröm 14,
Neseyjaroddi 14,
Sveinssker 10,
Katlar 10 og minna í öðrum.   
302 laxar voru yfir 70 cm og þar af tveir 100 cm, einn 101 cm og einn 102 cm. 
Á efra svæði veiddust 202 laxar og 3 urriðar.
Mest veiddist í Hólmabreiðu 29,
Klapparnef 24,
Bláhyl 21,
Flatarbúð 20,
Heimahyljir 16,
Dagmálahylur 16,
Nálarhylur 9, 
Kambhylur 9,
Ármót 8 og minna í öðrum.
142 laxar voru yfir 70 sm og þ.a. einn 100 sm.

Samtals voru því 444 laxar 70 sm og stærri. Öllu var sleppt aftur,“ sagði Ester í lokin og allt liggur þetta fyrir eftir sumarið 2022 í Stóru Laxa.