Vatnamótin gefa vel
„Veiðin gengur bara vel í Vatnamótunum hjá okkur, erum komnir með 53 fiska eftir einn og hálfan dag, ein vakt eftir núna,“ sagði Óli G Guðmundsson þegar við heyrðum í honum á veiðislóðum fyrir austan í kvöld. En þetta er í sjötta skiptið sem Óli og ég erum með þetta holl hérna fyrir austan.
„Í dag vorum við fjórir allir á með fisk í einu en núna er kominn litur á svæðið hérna en stærsti fiskurinn sem við höfum fengið er 86 sentimetra. Það hefur verið vindur allan tímann sem við höfum verið við veiðar og rigning en flott veiðiveður,“ sagði Óli enn fremur.
Veiðin gengur víða vel en sjóbirtingurinn er farinn að fara niður úr ánum og til sjávar en hann kemur aftur í haust og kannski aðeins sterkari en nú er. En allt hefur sinn tíma.
Tungufljótið, Geirlandsá, Tungulækur og Vatnamótin hafa verið að gefa vel fyrir austan síðustu daga. Það segja veiðitölurnar.


