FréttirVeiðikeppni

Frí beita í veiðina og veiðikeppni fyrir unga veiðimenn

/Mynd: María Gunnarsdóttir

Ungir veiðimenn fá mikla athygli í veiðiheiminum í byrjun veiðitímans, frí beita og veiðikeppni í sumar. Fleiri og fleiri ungir veiðimenn bætast við á hverju ári og ekki veitir af, aðal atriðið er að allir fái að veiða við sitt hæfi.

„Já þetta er okkar framlag til þess að virkja krakkana meira  í veiði og fá þau til að stunda meiri útivist í leiðinni,“ segir Segir Tómas Skúlason í Veiðiportinu og bætir við; „þar með minni tíma fyrir framan tölvuskjá yfir sumartímann en Tómas er fjögurra barna faðir, hann þekkir málið því nokkuð vel. „Þetta stefnir í magnað veiðisumar,“ sagði Tómas að lokum. 

Og sama tíma hleypir Veiðihornið á stað veiðikeppni fyrir unga veiðimenn í allt sumar og keppnin hugsuð fyrir börn og unglinga fimmtán og yngri. En keppt er í þremur flokkum og markmiðið er að fá alla krakka út að veiða og hafa gaman í allt sumar. Veiðikeppnin er samstarf Veiðihornins og ABU. Allir þáttakendur fá verðlaun því þegar fyrsta myndin hefur verið send fær viðkomandi veiðimaður spún í verðlaun. Tegundirnar eru tíu og falla innan ramma keppninnar; ufis, koli, marhnútur, ýsa, þorskur, makríll, flundra, bleikja, urriði og lax. 

Veiðisumarið gæti bara orðið óvenju fjörugt, fleiri ungir veiðimenn að renna fyrir fisk og aldrei að vita hvað skeður í veiðinni. Áhuginn er verulega að kveikna hjá veiðimönnum.