FréttirRisafiskurUrriði

Risaurriði úr Úlfljótsvatni

Kirill Ter Martirosov með 7 punda urriða úr Úlfljótsvatni

Veiðin er víða að komast af stað í vötnum landsins en veðurfarið mætti aðeins batna svo fiskurinn taki betur hjá veiðimönnum. En það er víða reynt þessa dagana og fiskurinn er að gefa sig, Elliðavatn hefur verið að gefa urriða og bleikjur, Úlfljótsvatn er byrjað að gefa væna fiska. Það eru ekki margir dagar síðan það gerðist.

„Já þetta gekk vel í Úlfljótsvatni og ég fékk tvo flotta urriða sá stærsti var 7 pund,” sagði veiðimaður Kirill Ter Martirosov í samtali en hann var á veiðislóð í vikunni. 

„Urriðinn var að gefa sig í vatninu aðeins sá stærri 7 punda en sá minni 4 punda. Þetta er fyrsta veiðiferðin á sumrinu og það voru þrír aðrir að veiða líka en fengu enga töku núna. Ég ætla að veiða töluvert í sumar og mest í vötnunum, ætla aðeins að hvíla laxveiðina í ár og reyna mikið við silunginn. Veiðin er svakalega skemmtilegt sport,” sagði Kirill Ter enn fremur.