FréttirUrriðiVeiðisaga

Flottur urriði í Elliðavatni

„Veðrið hafði verið hlýtt og blautt allan daginn og líklega mátti telja metrana á sekúndu í vindinum á annarri hendi. Þetta var fullkomið veiðiveður sem hafði kitlað mig allan daginn, svo ákveðið var að skjótast upp að Elliðavatni með félögunum í smá kvöldveiði, segir Tryggvi Guðmundsson um veiðiferð í Elliðavatn og bættii við: „þegar við mættum á bílastæðið um átta leytið sást strax þykkt lag af rykmýspúpuhömum sem höfðu hrannast upp við bakkann. Það benti til þess að mikið klak væri í gangi, þótt engar flugur væru á lofti vegna vindsins. Ég var spenntur fyrir að ná urriða þegar hann færi í kvöldstuðið, svo ég setti undir jig-sílaeftirlíkingu og óð út nálægt brúnni.

Ekki leið á löngu þar til þessi hörkutaka kom. Fiskurinn rauk samstundis upp úr vatninu eins og loftskeyti og lenti með tilheyrandi látum. Það fór ekkert á milli mála að þetta var fínasti fiskur. Hann brunaði út með línu, stökk nokkrum sinnum hæð sína og dansaði ofan á vatninu meðan bardaginn stóð sem hæst.

Loks þreyttist hann og náðist í háfinn við mikinn fögnuð. Fiskurinn mældist 56 cm og var í flottum holdum. Notað var þar til gert áhald til að skoða magainnihald hans og hann reyndist troðfullur af rykmýi, bæði púpur og klaktar flugur, og hornsíli í þokkabót.

Nánast um leið og ég var kominn aftur út í vatnið komu til okkar fjórir himbrimar í humátt hver á eftir öðrum. Þeir komu upp rétt rúmlega stangarlengd frá okkur og hófu síðan að kafa fram og til baka um allan veiðistaðinn. Við tókum nokkur köst eftir að þeir fóru, en eftir allt umstangið var lítið eftir af fisk á svæðinu. Um tíuleytið vorum við því búnir að pakka búnaðinum og komnir í bílana.

Þetta var fullkomin kvöldstund og það var haft á orði hvað við værum heppin að hafa aðgang að svona veislu hérna í bakgarðinum okkar,“ segir Tryggvi í lokin.