Fyrsti dagurinn gaf vel af fiski
„Veiðitímabilið hófst í Ytri-Rangá í gær hjá okkur nokkrum félögunum,” sagði Sæbjörn Guðmundsson í samtali um fyrsta daginn á tímabilinu, en margir fóru til veiða þrátt fyrir kalsaveður og það veiddist bara vel. En best var veiðin við Kirkjubæjarklaustur í Tungulæk, Geirlandsá og Tungufljóti en Ytri-Rangá gaf vel á fyrsta degi.
„Það er alltaf tvísýnt með veður í byrjun á þessum árstíma, en veðurguðirnir voru okkur nokkuð hagstæðir, um frostmark í morgunsárið en hlýnaði aðeins er leið á daginn. Þó nokkuð af fiski og náðum við að landa 8 fiskum, þar af 5 löxum á niðurleið og var sá stærsti 84 cm,” sagði Sæbjörn enn fremur.

