FréttirMaríulax

Ævintýri á Seyðisfirði

„Við Leon Leví tókum, ásamt systur hans, seinni part í Fjarðará á Seyðisfirði,“ sagði Guðmundur Rúnar Einarsson og bætti við;  „Hann sagðist oft hafa séð fallegar bleikjur og laxa þar. Þetta var okkar fyrsta ferð saman í Fjarðará þannig ég vissi ekkert við hverju væri að búast nema að það er alskýjað, stöku skúrir, logn og 9 stiga hiti. Það veit á gott. Við byrjum innst í ánni við Fjarðarsel og Fjarðarselsfoss. Þar fáum við 7 ágætisbleikjur og 1 hnúðlaxhæng sem krökkunum fannst ansi ljótt kvikindi. Við færum okkur neðar en þar var ekki eins mikið líf.
Dagurinn er 12. ágúst og klukkan orðin 17:15 sem þýðir að sólmyrkvinn er að bresta á. Brunað er upp á Fjarðarheiði og allir með gleraugun sem seldust upp hér eins og annarsstaðar. Það sást ekki neitt og Leon grínaðist með það að þessi svörtu ský væru það besta sem hann hafði séð á ævinni. Eftir neysluhlé var haldið aftur til veiða neðarlega í ánni en lítið að frétta þannig að við ákváðum að fara einu sinni enn í fossinn. Það borgaði sig því upp kom maríulaxinn eftir rúmlega 10 mínútna baráttu, 60 cm hængur tekinn á 15 gr svartan Hammer. Síðasti fiskur dagsins af ellevu. Frábær dagur og draumurinn rættist,“ sagði Guðmundur Rúnar í lokin.