Aftur á fjöll til rjúpna
„Mig langar sérstaklega að deila þessu í þeirri von að það geti orðið öðrum einstaklingum með hreyfihömlun hvatning og sýnt þeim að það eru til lausnir sem geta gert þeim kleift að komast aftur út í náttúruna og stunda áhugamál sín,“ segir veiðimaðurinn Jón Gunnar Benjamínsson, en hann fór til rjúpna fyrir fáum dögum eftir 20 ára stopp, eftir slys á sínum tíma.
„Mig langar líka að taka eitt fram varðandi Exoquad-farartækið sem ég nota. Þetta er ekki fjórhjól eða hefðbundið torfærutæki eins og margir þekkja, heldur sérhæft utanvega hjálpartæki sem er sérstaklega hannað fyrir fólk með fötlun og skerta hreyfigetu. Það gefur mér möguleika á að komast um í náttúrunni sem ég hefði annars ekki aðgang að og er hannað til að fara um með lágmarksraski á landi og gróðri.
Hjólin fara á gönguhraða meðalmanns í 4WD og því er ekki verið að eltast við bráðina á miklum hraða. Þetta kemur einfaldlega í stað lappana á manni.
Ég vona því að þið takið þessum myndum í þeim anda sem þeim er ætlað: að sýna að náttúran og útivistin eiga að vera aðgengileg öllum, líka okkur sem búum við hreyfihömlun.
Góða veiði og njótið náttúrunnar. Þetta var góður veiðidagur og hóflega veitt, með talsverði líkamlegri áreynslu,“ sagði Jón Gunnar eftir veiðitúrinn.


