Stokkönd er algeng, stór buslönd sem flestir kannast við. Steggurinn, grænhöfðinn, er með glansandi dökkgrænt höfuð og háls, neðst á hálsi er hvítur hálshringur og neðan hans tekur við rauðbrún bringan. Búkur og vængir eru gráleit, dekkri og brúnleitari að ofan en neðan. Undirstél og undirgumpur eru svört, stélið hvítt og gumpurinn svartur með tveimur krókfjöðrum fyrir miðju. Í felubúningi er hann dekkri en kollan, sérstaklega á höfði, og goggur gulleitari. Ungfuglar taka á sig lit fullorðinna fugla strax á fyrsta hausti. Kollan er brúnflikrótt, með ljósara höfuð og bringu. Höfuð og háls eru fínlega rákótt, með dekkri koll og augnrák. Bæði kyn hafa dökkbláa vængspegla með hvítum og svörtum bryddingum.

Stokkönd er stærst og þéttvöxnust buslandanna og oftast auðgreind. Hún flýgur hratt með grunnum vængjatökum og flýgur snöggt upp af vatni með bröttu uppflugi. Á auðvelt með gang og gengur í láréttri stöðu. Hún leitar sér ætis með því að hálfkafa með bakhlutann upp í loft, aðeins með haus og háls undir yfirborði, eða hún tínir æti úr vatnsborði. Karlfuglinn yfirgefur kvenfuglinn meðan hann liggur á og safnast steggirnir í hópa til að fella flugfjaðrir. Pörun stendur síðan yfir allan veturinn fram á vor. 

Texti: Fuglavefurinn