Fréttir

Nils Folmer með enn einn stórlaxinn – fimm laxar yfir 20 punda í sumar!

„Það er komnir fimm laxar á land yfir 20 pund í sumar og það kom einn í Aðaldalnum í viðbót í vikunni,“ sagði Nils Folmer Jorgensen þegar við heyrðum í honum.  Í gegnum tíðina hefur hann veitt þá nokkra yfir 20 pundinn og annan lax veiddi hann í Aðaldalnum fyrr í sumar og fisk yfir 20 pund veiddi hann síðar í Jöklu, svo eitthvað sé nefnt.

Ekki sama hvaða flugu er beitt

„Laxinn í Laxá í Aðaldal var 23 pund en þetta hefur verið frábært sumar hjá mér í veiðinni og ég veitt vel,” sagði Nils ennfremur.

Veiðin í Laxá í Aðaldal er rétt komin í 370 laxa og  nær varla sömu tölunni og í fyrra. Drottningin má muna fífil sinn fegurri.