FréttirVeiðisaga

Fjör við Litluá með Dyraverðinum

Dyravörðurinn í Neshyl

„Dyraverðir eru jötnar að burðum og halda sig við inn- og útganga þar sem þeir halda hlutum í röð og reglu, halda þeim inni sem eiga að vera að inni og þeim fyrir utan sem ekki er ætluð innivist,” sagði Gylfi Jón Gylfason og bætir við strax: „Það var því við hæfi að dyravörðurinn veiddist nú um helgina  þegar hann var að störfum í Veghyl, sem er efsti veiðistaðurinn í Litluá. Hann tók í fyrsta rennsli um morguninn. Klár í slaginn og knallpirraður yfir því að eitthvað skyldi voga sér að vera í hylnum sem þar átti ekki heima.  Flugan hvarf í djúpið og fiskurinn með. Frá fyrstu sekúndu var ljóst að um höfðingja af stærri gerðinni var að ræða. Hann byrjaði á því að taka strikið beint út og niður fyrir hylinn. 
Sá sem þetta skrifar fór með Maríubæn og þakkaði um leið starfsmönnum Veiðihornsins fyrir að hafa búið svo um hnúta að samskeytin á undirlínu og línunni Þyt runnu hnökralaust og ítrekað  í gegnum lykkjurnar. Í fyrstu roku fóru út einhverjir 15 metrar af undirlínu.  Það tók tímann sinn að ná undirlínunni inn aftur en það dugði ekki til. Hann rauk aftur og aftur yfir á undirlínu.
Hann sýndi sig loks eftir 15 mínútna baráttu, hreinsaði sig allan uppúr næstum eins og til að segja; þú landar mér aldrei!  Seinustu 10 mínúturnar af slagnum var tekist á af krafti. Veiðimaðurinn treysti glænýjum taumnum og tók fast á. Dyravörðurinn svarið í sömu mynt. Fiskurinn kom loks að landi og var snyrtilega háfaður af veiðifélaga sem kunni til verka. Í stressinu við að vera eldsnöggir við að koma Dyraverðinum út í aftur var fiskurinn einungis mældur á lengdina en ekki breiddina, hann var gríðarþykkur, en rétt rúmir 60 sentimetrar á lengdina.
Sá sem þetta ritar hefur lofað sjálfum sér og öðrum að segja aldrei ósatt spurður um hvaða flugur stórir fiskar taka. Hér fylgir því einungis mynd af flugunni sem Dyravörðurinn tók, frekar en að vera að útlista einhverja vitleysu um stærð og gerð flugu sem enginn trúir hvort eð er,” sagði Gylfi Jón enn fremur.