FréttirVeiðitölur

200 laxar komnir í Laxá í Aðaldal

Flottur lax í Aðaldal í morgun 101 cm og allir kátir

Frábær veiði hefur verið síðustu daga í Laxá. Það komu 11 laxar á land í morgun fyrir neðan fossa og einn af þeim var 101 cm fiskur sem Benjamín Kári Matthíasson landaði. Hollið endaði í 45 fiskum. „Miklar göngur í gangi og við hlökkum til framhaldsins,” sagði veiðimaður við Laxá í Aðaldal í morgun.

En veiðitoppurinn er þannig að Þverá er efst með 1230 laxa, síðan kemur Norðurá með 520 laxa og síðan Miðfjarðará með 440 laxa.