Risafiskur: Stærsta bleikjan sem veiðst hefur í Eyjafjarðará
Í dag veiddi Aron Sigurþórsson stærstu bleikju sem veiðst hefur í Eyjafjarðará svo vitað sé.
Við bara fullyrðum það. Þessi risastóri hængur mældist 76 cm, vigtaði 11,5 pund og átti heima á svæði 5. Hann tók Krókinn eftir Gylfa Kristjáns.
Við óskum Aroni til hamingju með þennan geggjaða fisk, segir á heimasíðu Eyjafjarðarár.


