Veiðidagur fjölskyldunnar í Hraunsfirði Snæfellsnesi á laugardaginn
Veiðikortið í samstarfi við Fluguhnýtingafélag Vesturlands kynnir opinn viðburð í Hraunsfirði á Snæfellsnesi, Veiðidagur Fjölskyldunnar verður haldinn í fyrsta sinn næstkomandi laugardag, þann 15. ágúst í Hraunsfirði á Snæfellsnesi.
Á staðnum verða reyndir veiðimenn vel kunnugir staðháttum sem munu aðstoða þá sem þess óska að finna fisk og vonandi setja í hann. Ókeypis opinn aðgangur verður í vatnið þennan dag ásamt því að boðið verður uppá léttar veitingar á staðnum. Einnig má taka fram að gott er tjalda við ef þessi flotta veðurspá fyrir helgina rætist og einhverjir skildu vilja lengja ferðina.
Það er staðreynd að stór hópur íslenskra stangveiðimanna og kvenna bera sterkar tilfinningar til Hraunsfjarðar enda hafa margir gert frábæra sjóbleikjuveiði þar.
Eitt af því dýrmætasta sem Hraunsfjörðurinn hefur uppá að bjóða er að eftir ferðir sem ekki fæst fiskur fer fólk samt sem áður ánægt og endurnært heim því það er sama hvar við vatnið þú stendur þá eru fjöllin og náttúran stórbrotin sama hvert litið er. Hraunsfjörðurinn hefur einnig þá sérstöðu, þrátt fyrir að vera frekar smátt vatn, að bjóða uppá mörg gerólík veiðisvæði sem bjóða veiðimönnum og konum uppá að stunda ólíkar veiðiaðferðir, þannig ef eitt plan er að klikka er alltaf hægt að breyta til og minnka þar með líkurnar á því að fólk komi heim með öngulinn í rassgatinu.
Lífríki vatnsins er alveg einstakt, en í Hraunsfirði er von á öllum hefðbundnum ferskvatns tegundum sem veiddar eru á Íslandi, þar er sjóbleikja, sjóbirtingur, staðbundin bleikja, staðbundinn urriði, atlantshafslax og áll ásamt hnúðlaxi og flundru.



