Það var margt um manninn við opnun Elliðaánna í morgun en einn lax var kominn á land þegar síðast var vitað. Mikið hefur gengið af fiski síðustu daga í árnar og byrjun veiðitímans gæti orðið góð. „Mér lýst vel á veiðisumarið,“ sagði Jón Þór Ólason, formaður Stangveiðifélags Reykjavíkur í samtali við Veiðar.is um veiðisumarið framundan.
Mynd. Einar Þorsteinsson kominn á bakkann. Fjör og margmenni við opnun Elliðaánna í morgun. Myndir María Gunnarsdóttir.