Veiðin er að batna í Laxá á Ásum á milli ára og núna eru komnir yfir 700 laxar á land þetta sumarið. Í gærkvöldi veiddist annar stærsti laxinn í ánni og það var veiðikonan Erla Þorsteinsdóttir sem fékk 103 sm boltalax í Fluguhyl. Þetta var hörkubarátta við laxinn.
Veiðikonan Erla hafði veitt tvo laxa um ævina og þetta hennar langstærsti til þessa en þetta er einn af stærri löxum sumarsins.