FréttirRisalax

Risafiskur á afmælisdaginn

Afmæliskonan með risafiskinn

Auður Ösp Jónsdóttir fagnaði afmælinu sínu í veiði í Ytri-Rangá í dag og dagurinn var eftirminnilegur. Hún fékk þennan 80 cm afmælissjóbirting sem hún landaði eftir talsverða baráttu á Bökkum. Fiskurinn tók Snældu. Það komu alls 7 birtingar á land í dag og stærsti fiskur dagsins var 95 cm tröll sem var 45 cm í ummál.

Óskum Auði innilega til hamingju með daginn og þennan geggjaða fisk. Frábær dagur i upphafi veiðitímans hjá afmæliskonunni. Ytri-Ranga byrjar vel í vorveiðinni.